Náttúrustofa Suðvesturlands
  • Um stofuna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Verkefni
    • Landnám grjótkrabba við Ísland
    • MNIS
    • Framandi sjávarlífverur við Ísland
    • Kortlagning fjara á Reykjanesskaga
    • Árstíðabreytingar á ífánu algengra vistgerða í fjöru
    • Búsvæða- og fæðuval fjörufugla
    • Flokkunarfræðileg staða undirtegunda meðal íslenskra fugla
    • Vöktun bjargfugla á Reykjanesskaga
    • Vistfræði máfa
    • SEATRACK
    • Farhætti íslenskra súla
    • Farhætti íslenskra kjóa
    • Fuglaflensa og heilbrigði fugla á Íslandi
    • Rannsóknir á varpi æðarfugls
    • Rjúpnatalningar
    • Kyngreining og kynjahlutföll sendlinga
    • Fuglastígur á Reykjanesskaga
    • Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
    • Þjóðgarðar í sjó
    • Fiðrildavöktun
    • Vöktun á saurkólígerlamengun á Suðurnesjum
  • Útgáfa
  • Tenglar
  • English
  • Fréttir

Fuglaflensa og heilbrigði fugla

Rannsóknirnar miða að því að greina dreifingu, tíðni og gerðir fuglaflensu með það að leiðarljósi að kanna hvernig flensuvírusar smitast milli Evrasíu og Ameríku auk þess að kanna áhrif þeirra á heilsu fugla. Árlegar sýnatökur hafa farið fram síðan 2010 víðsvegar um landið í samstarfi við US Geological Survey, Háskóla Íslands og Rannsóknasetur HÍ á Suðurnesjum.
Í tengslum við rannsóknirnar á fuglaflensu er unnið að því að meta heilsu fugla með beitingu ýmissa líffræðilegra mælikvarða, s.s. DNA skemmdir og ensímavirkni, ásamt því sem tíðni blóðsníkjudýra er metin í mismunandi fuglategundum.

Sýnatökur í tengslum við rannsóknina fara að mestu fram í næsta nágrenni við Náttúrustofu Suðvesturlands en einnig hafa verið tekin sýni vítt og breytt um landið. Stærsti hluti sýna kemur frá vorveiðum á fuglum og einnig er farið í reglulega í sýnatökur á haustin. Framan af var helsti þunginn á að safna upplýsingum um hvaða vírusar væru til staðar, hversu algengir þeir væru og hvaðan þeir kæmu, hluti þessara gagna hefur nú verið birtur í tímaritinu PlosOne. Nú er verið að vinna í því að taka sýni úr fleiri tegundum og einnig er verið að beita líffræðilegum mælikvörðum til að meta hvaða áhrif vírusarnir hafa á heilsu fuglana.
Í ljós hefur komið að hér finnast fuglaflensuvírusar bæði frá meginlandi Evrópu og Norður-Ameríku sem og blandaðir fuglaflensuvírusar og er það í fyrsta sinn sem slíkir vírusar finnast á sama tíma á sama svæðinu í heiminum.  Þessar upplýsingar geta gefið okkur mynd af því hvernig fuglaflensur berast milli heimsálfa og hlutverk Íslands í því ferli. Um landið fara mikið af fuglum á ferð sinni milli varp- og vetrarstöðva og benda þessar niðurstöður til þess að fuglaflensuveirur geti borist frá Evrópu og Asíu til Norður-Ameríku um Asíu. Mesta magn vírusa hefur fundist í mávum og andfuglum en einnig hafa vírusar fundist í vaðfuglum og svartfuglum. Mótefni hafa fundist í flestum tegundum fugla sem sýni hafa verið tekin úr en það er mjög misjafnlega hátt hlutfall milli tegunda.

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Um stofuna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Verkefni
    • Landnám grjótkrabba við Ísland
    • MNIS
    • Framandi sjávarlífverur við Ísland
    • Kortlagning fjara á Reykjanesskaga
    • Árstíðabreytingar á ífánu algengra vistgerða í fjöru
    • Búsvæða- og fæðuval fjörufugla
    • Flokkunarfræðileg staða undirtegunda meðal íslenskra fugla
    • Vöktun bjargfugla á Reykjanesskaga
    • Vistfræði máfa
    • SEATRACK
    • Farhætti íslenskra súla
    • Farhætti íslenskra kjóa
    • Fuglaflensa og heilbrigði fugla á Íslandi
    • Rannsóknir á varpi æðarfugls
    • Rjúpnatalningar
    • Kyngreining og kynjahlutföll sendlinga
    • Fuglastígur á Reykjanesskaga
    • Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
    • Þjóðgarðar í sjó
    • Fiðrildavöktun
    • Vöktun á saurkólígerlamengun á Suðurnesjum
  • Útgáfa
  • Tenglar
  • English
  • Fréttir