|
Þann 10. desember 2025 var farinn rannsóknarleiðangur í Eldey. Leiðangurinn var skipaður starfsfólki frá Náttúrustofu Suðvesturlands, Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnun og blaðamanni frá Heimildinni. Markmið leiðangursins var margþætt og fólst m.a. í að safna frekari upplýsingum um plastmengun, fugladauða og gliðnun eyjunnar sem og athuga með jarðskjálfavöktunarbúnaðinn sem settur var upp 2023. Leiðangurinn var með ævintýralegasta, allt gekk vel fyrir sig og náðist að safna öllum gögnum sem stefnt var að. Aðstæður voru fremur krefjandi, 7°C og mikill vindur (10-23 m/s). Þökkum við Landhelgisgæslunni kærlega fyrir að koma okkur heilum og höldnum til og frá eyjunni. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
December 2025
Categories |