|
Ársfundur vinnuhóps Alþjóðahafrannsóknaráðsins um flutning og landnám framandi tegunda (ICES WGITMO) var haldinn í háskólanum í Maryland 3.–5. mars síðastliðinn. Sem fyrr var einn fundardagur sameininlegur með vinnuhópi ICES um kjölfestuvatn og aðrar flutningsleiðir framandi tegunda (ICES WGBOVS) of fulltrúa Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO). Sérfræðinganefnd ITMO fór yfir stöðu mála í heiminum og þau samstarfsverkefni sem unnin eru innan hópsins. Áhersla var lögð á mikilvægi löggjafar og fræðslu í baráttunni við útbreiðslu framandi tegunda. Sindri Gíslason forstöðumaður Náttúrustofunnar kynnti stöðu mála á Íslandi og þau rannsóknverkefni sem unnið er að hér á landi. Þrátt fyrir að margt hafi áunnist er ljóst að mikið verk er enn fyrir höndum á heimsvísu. Flutningur framandi tegunda er eitt af stærstu umhverfisvandamálum heimsins í dag og skeytingaleysi gagnvart vandamálinu er enn of almennt.
2 Comments
4/7/2025 07:51:41
Hvar fór ársfundur ICES vinnuhópsins um flutning og landnám framandi tegunda fram, og hverjir komu að fundinum að þessu sinni?
Reply
7/3/2025 03:24:07
Hver voru helstu áhersluatriði ársfundar ICES WG-ITMO árið 2025 og hvernig tengjast þau baráttunni gegn útbreiðslu framandi tegunda á heimsvísu? Regard <a href="https://journals.telkomuniversity.ac.id/ijm/article/view/8351">Perpustakaan Online</a>
Reply
Leave a Reply. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
October 2025
Categories |