|
Nýlega birtist grein í tímaritinu Géomorphologie um áhrif landmótunarfræðilegra ferla á varpsvæðaval ritu og langvíu. Greinin er afrakstur meistaraverkefnis Louise Faure sem hún vann í samstarfi við Náttúrustofu Suðvesturlands og Náttúrustofu Norðausturlands.
Klettar eru mikilvæg varpsvæði sjófugla, en tengsl þeirra við jarðfræðilegan breytileika hafa hingað til lítið verið rannsökuð. Í þessari rannsókn var varpstaðaval ritu og langvíu skoðað í samhengi við landmótunarferla. Ljósmyndaraðir frá Skoruvíkurbjargi og Krýsuvíkurbergi voru greindar og niðurstöðurnar staðfestar með vettvangsathugunum. Helstu þættir sem hafa áhrif á stöðugleika kletta eru lega þeirra (hvort þeir eru í skjóli eða á sjávarbrún) og snið (beinlínulegt eða úfið). Þessir þættir móta þrjár megingerðir jarðmótunarlegrar virkni. Jarðmótunarferli reyndust þó hafa takmörkuð áhrif á varpstaðaval fuglanna; stöðugustu klettarnir voru smám saman yfirgefnir og engin merki sáust um aðlögun að óstöðugleika. Rannsóknin sýnir hve mikilvægt er að nýta langtímavöktunargögn til að greina breytingar á sjófuglastofnum og umhverfi þeirra. Greinina má nálgast HÉR
0 Comments
Leave a Reply. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
December 2025
Categories |