Náttúrustofa Suðvesturlands
  • Um stofuna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Framandi sjávarlífverur við Ísland
    • MNIS
    • Grjótkrabbi við Ísland
    • Sindraskel við Ísland
    • Svartserkur við Ísland
    • SEATRACK
    • Vöktun bjargfugla á Reykjanesskaga
    • Rjúpnavoktun
    • Fiðrildavöktun
    • Vöktun á saurkólígerlamengun á Suðurnesjum
    • Kortlagning fjara á Reykjanesskaga
    • Árstíðabreytingar á ífánu algengra vistgerða í fjöru
    • Fuglaflensa og heilbrigði fugla á Íslandi
    • Búsvæða- og fæðuval fjörufugla
    • Flokkunarfræðileg staða undirtegunda meðal íslenskra fugla
    • Vistfræði máfa
    • Súlur
    • Hnyðlingar á Reykjanesskaga
    • Farhætti íslenskra kjóa
    • Rannsóknir á varpi æðarfugls
    • Kyngreining og kynjahlutföll sendlinga
    • Fuglastígur á Reykjanesskaga
    • Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
    • Þjóðgarðar í sjó
  • Útgáfa
    • Ritrýndar vísindagreinar
    • Ársskýrslur
    • Skýrslur og fleira
    • Veggspjöld
    • Fyrirlestrar
    • Náttúrustofan í fjölmiðlum
    • Nemendaverkefni
  • Tenglar
  • English

Ný grein um tegundaflutning með sjávarrusli

11/22/2024

2 Comments

 
Grein um tegundaflutning með sjávarrusli kom út í dag í vísindaritinu Ocean and Coastal Research. Um er að ræða metnaðarfullt rannsóknarverkefni sem Holly I.A. Solloway vann í meistaranámi sínu við Háskólasetur Vestfjarða með leiðbeinendum sínum þeim Joana Micael og Sindra Gíslasyni hjá Náttúrustofu Suðvesturlands.


Meðfylgjandi er þýðing á ágripi greinarinnar:

"Rusl í hafi er orðið alþjóðlegt umhverfisvandamál með vaxandi vísbendingum um áhrif þess á höf og strandsvæði heimsins. Í þessari rannsókn er sjónum beint að sjávarrusli sem flutningsmáta fyrir ásetutegundir (e. fouling species) sem og dreifingu og samsetningu þess á þremur landssvæðum - Suðvesturlandi, Vestfjörðum og Norðausturlandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að plastrusl var algengasta gerðin af sjávarrusli hvort sem það var með ásetur eða ekki. Uppruni þess rusls sem fannst á ströndum var aðallega af landrænum uppruna, en það rusl sem hafði ásetur var aðallega upprunnið úr sjávartengdum iðnaði. Á þeim átta rannsóknarsvæðum sem skoðuð voru fundust yfir 79.000 einstaklingar og 92 tegundir á rusli í fjörum. Á Suðvesturlandi var bæði hæsti þéttleiki rusls og mest af ásetutegundum á rusli. Hins vegar var mest fjölbreytni og tegundajafnræði á Vestfjörðum. Ásetutegundir úr alls sex fylkingunum voru greindar, þ.e. liðormar, liðdýr, mosadýr, seildýr, holdýr og lindýr. Holdýr voru algengustu áseturnar á suðvestur- og norðaustursvæðum. Hins vegar voru liðormar með hæsta ásetuhlutfallið á Vestfjörðum. Tölfræðileg marktæk tengsl voru einnig greind á milli: tegundaauðgi og svæða, þéttleika og svæða, efnisgerðar og yfirborðsgrófleika- og þykktar. Niðurstöðurnar sýna hvernig tegundir geta fluttst með sjávarrusli milli svæða. Undirstrikar rannsókn þessi þörfina fyrir áframhaldandi vöktun á sjávarrusli við Ísland og mikilvægi þess að innleiða árangursríkrar stjórnunaraðferðir til að draga úr áhrifum þess á lífríki sjávar og stranda."

Greinin er í opinni útgáfu og má nálgast HÉR.

Picture
2 Comments
PJJ Informatika link
4/7/2025 07:49:23

Hver vann rannsóknarverkefnið um tegundaflutning með sjávarrusli sem birtist í vísindaritinu *Ocean and Coastal Research*?
Visit us <a href="https://bolif.telkomuniversity.ac.id/sharing-session-alumni-dan/">PJJ Informatika</a>

Reply
Alfun adam link
5/9/2025 03:50:02

Good Information
Regards, <a href="https://unissula.ac.id">Unissula</a>

Reply



Leave a Reply.

    Náttúrustofa Suðvesturlands

    Fréttir af daglegri starfsemi stofunnar

    Archives

    April 2025
    March 2025
    January 2025
    December 2024
    November 2024
    October 2024
    September 2024
    July 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    January 2024
    December 2023
    November 2023
    October 2023
    September 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    May 2023
    March 2023
    February 2023
    December 2022
    November 2022
    October 2022
    August 2022
    July 2022
    May 2022
    March 2022
    January 2022
    December 2021
    October 2021
    August 2021
    July 2021
    June 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    October 2020
    August 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    January 2020
    December 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    March 2019
    December 2018
    November 2018
    July 2018
    May 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    November 2017
    July 2017

    Categories

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Um stofuna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Framandi sjávarlífverur við Ísland
    • MNIS
    • Grjótkrabbi við Ísland
    • Sindraskel við Ísland
    • Svartserkur við Ísland
    • SEATRACK
    • Vöktun bjargfugla á Reykjanesskaga
    • Rjúpnavoktun
    • Fiðrildavöktun
    • Vöktun á saurkólígerlamengun á Suðurnesjum
    • Kortlagning fjara á Reykjanesskaga
    • Árstíðabreytingar á ífánu algengra vistgerða í fjöru
    • Fuglaflensa og heilbrigði fugla á Íslandi
    • Búsvæða- og fæðuval fjörufugla
    • Flokkunarfræðileg staða undirtegunda meðal íslenskra fugla
    • Vistfræði máfa
    • Súlur
    • Hnyðlingar á Reykjanesskaga
    • Farhætti íslenskra kjóa
    • Rannsóknir á varpi æðarfugls
    • Kyngreining og kynjahlutföll sendlinga
    • Fuglastígur á Reykjanesskaga
    • Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
    • Þjóðgarðar í sjó
  • Útgáfa
    • Ritrýndar vísindagreinar
    • Ársskýrslur
    • Skýrslur og fleira
    • Veggspjöld
    • Fyrirlestrar
    • Náttúrustofan í fjölmiðlum
    • Nemendaverkefni
  • Tenglar
  • English