Grein um vöktun framandi tegunda í höfnum kom út í dag í vísindaritinu Journal of Coastal Conservation í vikunni. Um nokkur tímamót er að ræða þar sem formleg vöktun sem þessi á framandi tegundum í höfnum hefur aldrei verið framkæmd hér á landi og er hér greint frá niðurstöðum vöktunar í átta höfnum allt í kringum landið.
Lausleg þýðing ágrips: "Framandi tegundir hafa mikil áhrif á sjávarvistkerfi jarðar. Í þessari rannsókn okkar skoðum við hversu algengar framandi tegundir eru í íslenskum höfnum með áherslu á tegundaauðgi og samfélagssamsetningu ásetutegunda (e. fouling species). Með því að nota sérútbúnar setplötur gátum við sýnt fram á ráðandi stöðu framandi tegunda, sérstaklega tegundir möttuldýra, sem er í takti við alþjóðlega þróun. Ríkjandi tegundir voru mismunandi frá ári til árs, sem líklega ræðst af umhverfisaðstæðum, útbreiðsluþrýstingi og eins þeim tegundum sem þegar hafa numið land. Aukning sjóflutninga og siglinga almennt hefur verið mikil, einkum á suðvesturland, sem aukið hefur til muna líkur á því að hingað berist nýjar framandi tegundir og nemi land. Ofan á það geta innanlandssiglingar stuðlað að enn frekari útbreiðslu framandi tegunda milli landshluta. Sex tegundir framandi möttuldýra voru greindar á setplötum auk þriggja áður óþekktra mosadýrategunda, sem undirstrikar nauðsyn enn frekari líflandfræðilegra rannsókna. Dultegundir, þ.e. tegundir með óþekktan landfræðilegan uppruna eru stór hluti ásetutegunda hér á landi, sem skapar miklar áskoranir við að skilja líflandafræði og landnámsvistfræði þeirra. Niðurstöður okkar leggja áherslu á flókið samspil ásetusamfélaga í íslenskum höfnum og undirstrika þörfina fyrir áframhaldandi vöktun og bætta stjórnun á tímum mikilla umhverfisbreytingar og flutningi framandi tegunda." Greinina má nálgast með því að smella á myndina.
0 Comments
Leave a Reply. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
November 2024
Categories |