Í Samfélaginu á Rás 1 þann 24.mars fór Guðumundur Pálsson yfir ýmislegt er viðkemur grjótkrabba og framandi tegundum með Sindra Gíslasyni forstöðumanni Náttúrustofunnar.
Þáttinn má nálgast með því að smella á myndina hér að neðan.
0 Comments
Ljósop í samvinnu við KAMfilm hafa framleitt 6 stutta þætti, hver um 10 mínútur að lengd sem fjalla um áhrif loftlagsbreytinga á sex mismunandi hluta af náttúru Íslands (gróðurfar, fuglar, spendýr, smádýr, vatnalíf og framandi ágengar tegundir). Eru þeir ætlaðir til kennslu og almennrar fræðslu. Þættirnir eru unnir með styrk frá Loftlagssjóði og með aðstoð og í samvinnu við Náttúrufræðistofnun. Hér að neðan má sjá þáttinn um framandi ágengar tegundir, en meðal þeirra sérfræðinga sem rætt er við þar eru þau Sindri Gíslason og Joana Micael starfsfólk Náttúrustofunnar. Stórvinir okkar þeir Erling Ólafsson og Matthías Alfreðsson skordýrafræðingar á Náttúrufræðistofnun litu við í vikunni. Alltaf tilhlökkun að fá þá félaga í hús í árlegu heimsókn þeirra að greina fiðrildaafla ársins hjá okkur úr Norðurkoti. Aflinn í ár var heldur rýrari hjá okkur en oft áður og fór tímabilið seint af stað eins og víða annars staðar á landinu. Í ár bættist við ein tegund fiðrilda fyrir vöktunarstöðina okkar í Norðurkoti og er heildarfjöldi fiðrildategunda þar nú kominn í 41 tegund, auk fjögurra tegunda vorflugna. Nýjast viðbót fiðrilda við listann er hringygla (Mniotype adusta), en hún hefur fundist víða um landið og er algengust fyrri part sumars. Nánari upplýsingar um hringyglu og önnur fiðrildi á Íslandi má finna á Skodýravef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Við fengum heldur betur góða heimsókn í vikunni þegar félagarnir Jón S. Ólafsson vatnalíffræðingur á Hafrannsóknastofnun og Dave Morritt sjávarlíffræðingur og prófessor við Royal Holloway - University of London litu við hjá okkur.
Dave dvaldi um tíma hér á Garðvegi 1 í Sandgerði árið 1999. Hann stundaði þá rannsóknir á hinni framandi tegund fitjafló með Agnari Ingólfssyni prófessor í vistfræði við Háskóla Íslands. Dave hefur í gegnum sinn starfsferil til að mynda mikið unnið með framandi tegundir og var því einkar áhugasamur um að kynna sér starfsemina hjá okkur. Við þökkum þeim Jóni og Dave fyrir heimsóknina og er aldrei að vita nema heimsóknin leiði af sér samstarf í framtíðinni. Líffræðiráðstefnan var haldin dagana 14. – 16. október 2021 í Öskju og Íslenskri Erfðagreiningu. Líffræðiráðstefnan er stærsti viðburður sinnar tegundar hérlendis og var þetta í 10. sinn sem hún var haldin. Á ráðstefnunni koma saman flestallir vísindamenn á sviði líffræðinnar og fulltrúar nær allra stofnana og fyrirtækja sem tengjast lífvísindaheiminum á Íslandi. Ráðstefnan var sem endranær opin almennu áhugafólki um líffræði. Náttúrustofan Suðvesturlands lét ekki sitt eftir liggja og var með þrjú framlög á formi erinda:
Á gamlársdag 2020 fundust nokkrar dauðar hnífskeljar (Ensis sp.) í fjöru í Hvalfirði og skömmu síðar fann Guðni Magnús Eiríksson líffræðingur lifandi eintak í fjörunni við ósa Hafnarár í mynni Borgarfjarðar. Ljóst er að hér er um nýjan landnema að ræða, en áður höfðu tvö eintök af fáfnisskel (Ensis magnus), fundist dauð í fjöru við Lónsfjörð árið 1957. Í millitíðinni hefur ekkert til hnífskelja spurst hér á landi. Sex tegundir hnífskelja hafa fundist í norðanverðu Atlantshafi. Samlokurnar eru langar og mjóar og skelbrúnirnar hnífbeittar. Þær líkjast helst gamaldags rakhnífum og þaðan er enska heitið „razor clams" einmitt komið. Hnífskeljar geta orðið 20 cm langar og þykja hnossgæti. Með erfðagreiningu hefur nú verið staðfest að nýi landneminn tilheyrir tegundinni Ensis terranovensis, sem nefnd hefur verið sindraskel, en þeirri tegund hefur nýlega verið lýst eða árið 2012 og hefur hún aðeins fundist við Nýfundnaland til þessa. Flutningur sjávarlífvera af manna völdum út fyrir náttúruleg heimkynni sín og inn á ný svæði verður sífellt algengari. Oftast berast þær áfastar skipskrokkum eða með kjölvatni skipa. Á Líffræðiráðstefnunni sem haldin var 14.-16.október var sagt frá fundi sindraskeljar hér við land, en rannsókn á tegundinni er samvinnuverkefni Náttúruminjasafns Íslands, Hafrannsóknastofnunnar, Anishinabek/Ontario Fisheries Resource Centre, Matís og Náttúrustofu Suðvesturlands. Sterkar líkur eru á því að sindraskelin hafi borist til Íslands með kjölfestuvatni flutningaskipa frá austurströnd Norður Ameríku, mögulega fyrir 5 til 10 árum. Nái framandi tegundir að festa sig í sessi á nýjum slóðum geta þær í sumum tilfellum valdið skaða á lífríkinu sem fyrir er. Vöktun sindraskelja er því mikilvæg. Finni fólk eintök af hnífskeljum er það hvatt til að hafa samband við Náttúrustofu Suðvesturlands, sindri@natturustofa.is. Starfsmenn Náttúrustofunnar og Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum fóru í gær með nemendur á þriðja ári í líffræði við Háskóla Íslands í sýnatökur á Sundin við Reykjavík. Sjóferðin er hluti af fjölbreyttu og umfangsmiklu vettvangsnámskeiði í vistfræði. Þetta er fimmta árið sem nemendum hefur boðist að fara á sjó með okkur. Fá nemendurnir innsýn í rannsóknarvinnu okkar og fá kost á að læra réttu handtökin. Gerast nemendur í vettvangsnámskeiðinu því þáttakendur í mikilvægri vöktun á stofnbreytingum á hinum nýja landnema grjótkrabba. Nemendur fengu fínasta veður og stóðu sig með mikilli prýði. Við fengum skemmtilega heimsókn til okkar í gær. Ríkistjórnin var í formlegri heimsókn um Suðurnesin og leit við hjá okkur og kynnti sér þá fjölbreyttu rannsókna- og fræðslustarfsemi sem á sér stað á Garðvegi 1. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
April 2024
Categories |