Reykjanesskaginn er gríðarmikilvægt fæðuöflunarsvæði fyrir vaðfugla sem stoppa hér í nokkrar vikur á fartíma á leið sinni á varp- eða vetrarstöðvar. Mikill fjöldi umferðarfugla stoppar á svæðinu og byggir upp forða í lífríkum fjörunum fyrir farflugið sem er ákaflega orkufrekt ferli. Fuglarnir hópast oft saman á afmörku svæði í fjörunni þegar þeir eru í virkri fæðuleit en hvaða fæðu úr fjörunum fuglarnir eru að nýta sér hefur fram að þessu að mestu verið á huldu. Fjöldi og þéttleiki fjöruhryggleysingja er mismikill eftir vistgerðum og svæðum og því ljóst að fjörur eru mismikilvægar sé horft á þær sem forðabúr fyrir vaðfugla. Upplýsingar um fæðuval fuglanna og hvar þá fæðu sé helst að finna gefur okkur þannig heilsteyptari mynd af mikilvægi íslenskra fjara í vistfræðilegu samhengi.
Sýnum var safnað til að mæla stöðugar samsætur með það að leiðarljósi að kanna á hvaða dýrahópum vaðfuglar eru helst að nærast hér við land. Verkefnið er unnið samhliða verkefninu árstíðabreyting á ífánu í fjörum. Rannsóknin var m.a. partur af meistaraverkefni Sölva Rúnars Vignissonar sem nálgast má hér.