Það er okkur ánægja að segja frá því að Náttúrustofan er þátttakandi í EULVA verkefninu (European Ulva Taxonomy Initiative). Um er að ræða stórt samevrópskt verkefni sem miðar að því að gera ítarlegt mat á fjölbreytileika grænþörunga innan Ulva ættikvíslarinnar á evrópskan mælikvarða, byggt á erfðafræðilegum gögnum. Ulva er án efa ein algengasta, útbreiddasta og þekktasta ættkvísl þangs í heiminum. Eins og staðan er í dag á heimsvísu er enn verulegur þekkingarskortur á raunverulegum tegundafjölbreytileika innan ættkvíslarinnar, á það jafnframt við á vel könnuðum svæðum eins og í Evrópu. Á meðfylgjandi mynd má sjá þáttökulönd í verkefninu. Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér: https://sites.google.com/view/eulva/
0 Comments
Leave a Reply. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
July 2024
Categories |