Náttúrustofa Suðvesturlands
  • Um stofuna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Framandi sjávarlífverur við Ísland
    • MNIS
    • Grjótkrabbi við Ísland
    • Sindraskel við Ísland
    • Svartserkur við Ísland
    • SEATRACK
    • Vöktun bjargfugla á Reykjanesskaga
    • Rjúpnavoktun
    • Fiðrildavöktun
    • Vöktun á saurkólígerlamengun á Suðurnesjum
    • Kortlagning fjara á Reykjanesskaga
    • Árstíðabreytingar á ífánu algengra vistgerða í fjöru
    • Fuglaflensa og heilbrigði fugla á Íslandi
    • Búsvæða- og fæðuval fjörufugla
    • Flokkunarfræðileg staða undirtegunda meðal íslenskra fugla
    • Vistfræði máfa
    • Súlur
    • Hnyðlingar á Reykjanesskaga
    • Farhætti íslenskra kjóa
    • Rannsóknir á varpi æðarfugls
    • Kyngreining og kynjahlutföll sendlinga
    • Fuglastígur á Reykjanesskaga
    • Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
    • Þjóðgarðar í sjó
  • Útgáfa
    • Ritrýndar vísindagreinar
    • Ársskýrslur
    • Skýrslur og fleira
    • Veggspjöld
    • Fyrirlestrar
    • Náttúrustofan í fjölmiðlum
    • Nemendaverkefni
  • Tenglar
  • English

Líffræðiráðstefnan 2021

10/18/2021

0 Comments

 
Líffræðiráðstefnan var haldin dagana 14. – 16. október 2021 í Öskju og Íslenskri Erfðagreiningu. Líffræðiráðstefnan er stærsti viðburður sinnar tegundar hérlendis og var þetta í 10. sinn sem hún var haldin. Á ráðstefnunni koma saman flestallir vísindamenn á sviði líffræðinnar og fulltrúar nær allra stofnana og fyrirtækja sem tengjast lífvísindaheiminum á Íslandi. Ráðstefnan var sem endranær opin almennu áhugafólki um líffræði.

Náttúrustofan Suðvesturlands lét ekki sitt eftir liggja og var með þrjú framlög á formi erinda:
  • Nýr landnemi meðal lindýra; Sindraskel (Ensis terranovensis, Vierna & Martínez-Lage, 2012) finnst við Suðvesturland  [Karl Gunnarsson flutti]
  • Towards the management of an invasive tunicate  [Joana Micael flutti]
  • High occurrence of shell disease in the non-indigenous Atlantic rock crab (Cancer irroratus) in Iceland  [Sindri Gíslason flutti]
Heiðursverðlaun Líffræðifélagsins í ár hlutu þeir Sindri Gíslason og Sigurður Sveinn Snorrason, prófessor emeritus. Að því tilefni flutti hvor um sig erindi um rannsóknir á ferli sínum.
0 Comments

Sindraskel - nýr landnemi af ætt hnífskelja

10/17/2021

0 Comments

 
Picture
Á gamlársdag 2020 fundust nokkrar dauðar hnífskeljar (Ensis sp.) í fjöru í Hvalfirði og skömmu síðar fann Guðni Magnús Eiríksson líffræðingur lifandi eintak í fjörunni við ósa Hafnarár í mynni Borgarfjarðar. Ljóst er að hér er um nýjan landnema að ræða, en áður höfðu tvö eintök af fáfnisskel (Ensis magnus), fundist dauð í fjöru við Lónsfjörð árið 1957. Í millitíðinni hefur ekkert til hnífskelja spurst hér á landi.

Sex tegundir hnífskelja hafa fundist í norðanverðu Atlantshafi. Samlokurnar eru langar og mjóar og skelbrúnirnar hnífbeittar. Þær líkjast helst gamaldags rakhnífum og þaðan er enska heitið „razor clams" einmitt komið. Hnífskeljar geta orðið 20 cm langar og þykja hnossgæti.

Með erfðagreiningu hefur nú verið staðfest að nýi landneminn tilheyrir tegundinni Ensis terranovensis, sem nefnd hefur verið sindraskel, en þeirri tegund hefur nýlega verið lýst eða árið 2012 og hefur hún aðeins fundist við Nýfundnaland til þessa.

Flutningur sjávarlífvera af manna völdum út fyrir náttúruleg heimkynni sín og inn á ný svæði verður sífellt algengari. Oftast berast þær áfastar skipskrokkum eða með kjölvatni skipa. Á Líffræðiráðstefnunni sem haldin var 14.-16.október var sagt frá fundi sindraskeljar hér við land, en rannsókn á tegundinni er samvinnuverkefni Náttúruminjasafns Íslands, Hafrannsóknastofnunnar, Anishinabek/Ontario Fisheries Resource Centre, Matís og Náttúrustofu Suðvesturlands.

Sterkar líkur eru á því að sindraskelin hafi borist til Íslands með kjölfestuvatni flutningaskipa frá austurströnd Norður Ameríku, mögulega fyrir 5 til 10 árum. Nái framandi tegundir að festa sig í sessi á nýjum slóðum geta þær í sumum tilfellum valdið skaða á lífríkinu sem fyrir er. Vöktun sindraskelja er því mikilvæg.

Finni fólk eintök af hnífskeljum er það hvatt til að hafa samband við Náttúrustofu Suðvesturlands, [email protected].

0 Comments

    Náttúrustofa Suðvesturlands

    Fréttir af daglegri starfsemi stofunnar

    Archives

    April 2025
    March 2025
    January 2025
    December 2024
    November 2024
    October 2024
    September 2024
    July 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    January 2024
    December 2023
    November 2023
    October 2023
    September 2023
    August 2023
    July 2023
    June 2023
    May 2023
    March 2023
    February 2023
    December 2022
    November 2022
    October 2022
    August 2022
    July 2022
    May 2022
    March 2022
    January 2022
    December 2021
    October 2021
    August 2021
    July 2021
    June 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    October 2020
    August 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    January 2020
    December 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    May 2019
    March 2019
    December 2018
    November 2018
    July 2018
    May 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    November 2017
    July 2017

    Categories

    All

    RSS Feed

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Um stofuna
    • Starfsfólk
    • Stjórn
  • Fréttir
  • Verkefni
    • Framandi sjávarlífverur við Ísland
    • MNIS
    • Grjótkrabbi við Ísland
    • Sindraskel við Ísland
    • Svartserkur við Ísland
    • SEATRACK
    • Vöktun bjargfugla á Reykjanesskaga
    • Rjúpnavoktun
    • Fiðrildavöktun
    • Vöktun á saurkólígerlamengun á Suðurnesjum
    • Kortlagning fjara á Reykjanesskaga
    • Árstíðabreytingar á ífánu algengra vistgerða í fjöru
    • Fuglaflensa og heilbrigði fugla á Íslandi
    • Búsvæða- og fæðuval fjörufugla
    • Flokkunarfræðileg staða undirtegunda meðal íslenskra fugla
    • Vistfræði máfa
    • Súlur
    • Hnyðlingar á Reykjanesskaga
    • Farhætti íslenskra kjóa
    • Rannsóknir á varpi æðarfugls
    • Kyngreining og kynjahlutföll sendlinga
    • Fuglastígur á Reykjanesskaga
    • Eldfjallagarður á Reykjanesskaga
    • Þjóðgarðar í sjó
  • Útgáfa
    • Ritrýndar vísindagreinar
    • Ársskýrslur
    • Skýrslur og fleira
    • Veggspjöld
    • Fyrirlestrar
    • Náttúrustofan í fjölmiðlum
    • Nemendaverkefni
  • Tenglar
  • English