Í dag heimsótti Náttúrustofuna góður hópur frá Eistlandi. Um er að ræða hóp 17 fulltrúa þarlendra umhverfisyfirvalda sem dvelur nú hér á landi til að kynna sér málefni framandi og ágengra tegunda og hvernig tekið er á þeim málum hér á landi. Þau Sindri og Joana kynntu fyrir hópnum vöktun Náttúrustofunnar á framandi tegundum í sjó við Ísland. Fékk hópurinn að sjá hvernig staðið er að vöktun framandi tegunda í höfnum með því að slást með okkar fólki í Sandgerðishöfn. Þar var verkefnið kynnt formlega, aðferðafræðinni lýst og að lokum sýnt hvernig vettvangsvinna okkar fer fram. Að lokinni vettvangsvinnunni fékk hópurinn leiðsögn um starfsemi okkar og samstarfsstofnanna á Garðvegi 1. Með hópnum í för voru þau René Biasone og Ásta Kristín Davíðsdóttir frá Umhverfisstofnun, Theresa Henke frá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum, og Snorri Sigurðsson, sviðsstjóri náttúruverndar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
0 Comments
Starfsmenn Náttúrustofunnar og Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum fóru í gær með nemendur á þriðja ári í líffræði við Háskóla Íslands í sýnatökur á Sundin við Reykjavík. Sjóferðin er hluti af fjölbreyttu og umfangsmiklu vettvangsnámskeiði í vistfræði. Þetta er sjöunda árið sem nemendum hefur boðist að fara á sjó með okkur. Fá nemendurnir innsýn í rannsóknarvinnu okkar og fá kost á að læra réttu handtökin. Gerast nemendur í vettvangsnámskeiðinu því þáttakendur í mikilvægri vöktun á stofnbreytingum á hinum nýja landnema grjótkrabba. Nemendur fengu fínasta veður og stóðu sig með mikilli prýði. Ólafur Páll Jónsson jarðfræðingur á Náttúrustofunni hélt í kvöld áhugavert erindi í samstarfi við Þekkingarsetur Suðurnesja sem bar titilinn Hvað með eldgos? Í erindi sínu fór hann yfir eldvirkni á Reykjanesinu í aldanna rás, útskýrði atburði undanfarinna ára (og líðandi stundar), myndun bergs og nýrra jarðlaga og langtíma og skammtíma áhrif eldgosa.
Við þökkum við þeim sem hlýddu fyrir samveruna og komuna. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
November 2024
Categories |