Ljósop í samvinnu við KAMfilm hafa framleitt 6 stutta þætti, hver um 10 mínútur að lengd sem fjalla um áhrif loftlagsbreytinga á sex mismunandi hluta af náttúru Íslands (gróðurfar, fuglar, spendýr, smádýr, vatnalíf og framandi ágengar tegundir). Eru þeir ætlaðir til kennslu og almennrar fræðslu. Þættirnir eru unnir með styrk frá Loftlagssjóði og með aðstoð og í samvinnu við Náttúrufræðistofnun. Hér að neðan má sjá þáttinn um framandi ágengar tegundir, en meðal þeirra sérfræðinga sem rætt er við þar eru þau Sindri Gíslason og Joana Micael starfsfólk Náttúrustofunnar.
0 Comments
Stórvinir okkar þeir Erling Ólafsson og Matthías Alfreðsson skordýrafræðingar á Náttúrufræðistofnun litu við í vikunni. Alltaf tilhlökkun að fá þá félaga í hús í árlegu heimsókn þeirra að greina fiðrildaafla ársins hjá okkur úr Norðurkoti. Aflinn í ár var heldur rýrari hjá okkur en oft áður og fór tímabilið seint af stað eins og víða annars staðar á landinu. Í ár bættist við ein tegund fiðrilda fyrir vöktunarstöðina okkar í Norðurkoti og er heildarfjöldi fiðrildategunda þar nú kominn í 41 tegund, auk fjögurra tegunda vorflugna. Nýjast viðbót fiðrilda við listann er hringygla (Mniotype adusta), en hún hefur fundist víða um landið og er algengust fyrri part sumars. Nánari upplýsingar um hringyglu og önnur fiðrildi á Íslandi má finna á Skodýravef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Við fengum heldur betur góða heimsókn í vikunni þegar félagarnir Jón S. Ólafsson vatnalíffræðingur á Hafrannsóknastofnun og Dave Morritt sjávarlíffræðingur og prófessor við Royal Holloway - University of London litu við hjá okkur.
Dave dvaldi um tíma hér á Garðvegi 1 í Sandgerði árið 1999. Hann stundaði þá rannsóknir á hinni framandi tegund fitjafló með Agnari Ingólfssyni prófessor í vistfræði við Háskóla Íslands. Dave hefur í gegnum sinn starfsferil til að mynda mikið unnið með framandi tegundir og var því einkar áhugasamur um að kynna sér starfsemina hjá okkur. Við þökkum þeim Jóni og Dave fyrir heimsóknina og er aldrei að vita nema heimsóknin leiði af sér samstarf í framtíðinni. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
November 2024
Categories |