Fiðrildaveiðar eru nú hafnar hjá okkur þetta árið og munu standa yfir næstu 32 vikurnar. Náttúrustofan hefur frá árinu 2016 staðið að vöktun fiðrilda í Norðurkoti. Vöktun fiðrilda hófst fyrst hér á landi árið 1995 fyrir tilstilli Náttúrufræðistofnunar Íslands. Náttúrustofur landshlutanna, allar nema ein, hafa hver af annarri gerst þátttakendur í verkefninu í náinni samvinnu við Náttúrufræðistofnun með samstilltum aðgerðum.
Fyrsta vitjun okkar var í gildruna var í gær og þar beið okkar þessi myndarlega garðygla. Áhugavert verður að fylgjast með framhaldinu. En þess má geta að frá upphafi verkefnisins hafa alls fundist 39 tegundir fiðrilda og 3 tegundir vorfluga í Norðurkoti.
0 Comments
Leave a Reply. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
October 2024
Categories |