Ný grein um stöðu verklags við innflutning skrautfiska og vatnadýra til Íslands og mögulega ógn10/17/2023 Landnám framandi tegunda er undir áhrifum af mannlegum athöfnum og mótast í takti við þær. Viðskipti með lífverur sem fela í sér flutning þeirra, sem getur leitt til landnáms þeirra á nýjum svæðum, teljast til þessara athafna. Í alþjóðaverslun skrautfiska og vatnadýra eru þúsundir tegunda fluttar um heim allann og því er hættan fyrir hendi á að óæskilegum lífverum gæti verið sleppt í vistkerfin með skaðlegum vistfræðilegum og efnahagslegum áhrifum.
Til að kanna stöðuna á Íslandi var úrval gæludýraverslana á skrautfiskum og vatnadýrum skoðað og eins það starfsumhverfi sem þeim er búið m.t.t. laga. Spurningalisti sem lagður var fyrir eigendur gæludýraverslana leiddi í ljós að alls eru 1,275 tegundir sjávardýra í boði fyrir áhugafólk um skrautfiska og vatnadýr á Íslandi. Meðal þeirra eru 134 sem tilkynntar hafa sem framandi tegundir í öðrum löndum og átta þeirra sem flokkast sem ágengar. Þó að veðurfarslega sé töluverður munur á hita milli uppruna- og viðtakaumhverfis þessara tegunda, þá útilokar það ekki möguleika sumra þeirra til að fjölga sér við strendur Íslands. Að auki eru 73 tegundir taldar í yfirvofandi hættu (NT), í nokkurri hættu (VU) eða í hættu (EN) á válista Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN). Þrátt fyrir að á Íslandi sé löggjöf um innflutning á gæludýrum, þar á meðal skrautfiskum og vatnadýrum, er engum upplýsingum safnað af tollayfirvöldum um tegundir sem verslað er með (tegund/fjöldi). Núverandi staða hvetur til úrbóta á löggjöf og reglugerðum um búrfiskaiðnaðinn hér á landi. Stjórnunaráætlanir eru aðkallandi og ættu að fela í sér kerfisbundna upplýsingasöfnun og fræðsluherferðir sem miða að því að draga úr hugsanlegri losun allra óæskilegra lífvera út í umhverfið. Tekið skal fram að ekki er við gæludýraverslanir að sakast, vandamálið er óskýrt lagaumhverfi á Íslandi og skortur á eftirliti stjórnvalda með innflutningi. Greinina má nálgast með því að smella á myndina.
0 Comments
Leave a Reply. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
November 2024
Categories |