Sautjánda vöktunarár grjótkrabba í Faxaflóa er nú hafið. Náttúrustofan og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum halda utan um vöktunina. Byggist vöktunin á gildruveiðum fullorðinna krabba og eins á svifsýnatökum með háfum til að fylgjast með fjölda lirfa í uppsjó. Ljóst er á gildruveiðum að grjótkrabbinn er hvergi að gefa eftir og er sem fyrr ráðandi í afla, með 99% aflahlutdeild. Hér að neðan má sjá myndir úr fyrsta leiðangri þessa vöktunarárs.
0 Comments
Leave a Reply. |
Náttúrustofa SuðvesturlandsFréttir af daglegri starfsemi stofunnar Archives
October 2024
Categories |